Hjaltastaðir kynntir á málþingi um einhverfa fullorðna í Hofi

Þann 26. september síðastliðinn tókum við hjá Hjaltastöðum þátt í málþinginu Einhverfa fullorðinna – Hvað þarf að breytast? sem haldið var í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri á vegum Geðverndarfélags Akureyrar.
Á málþinginu flutti Gerður Ósk Hjaltadóttir áhrifamikið erindi þar sem hún deildi persónulegri reynslu sinni og sagði frá syni sínum, Hjalta Snæ Árnasyni, sem lést árið 2025, aðeins 22 ára gamall. Hún lýsti Hjalta sem hæfileikaríkum, greindum og skapandi ungum manni sem hafði fjölbreytt áhugamál og styrkleika, en átti erfitt með að finna sinn stað í samfélagi og þjónustukerfi sem mætti ekki nægilega þörfum hans.

Úr reynslu fjölskyldunnar og minningu Hjalta Snæs varð verkefnið Hjaltastaðir til. Gerður Ósk fjallaði jafnframt um þróun verkefnisins, hugmyndafræðina sem liggur að baki því og þá framtíðarsýn að skapa umhverfi þar sem ungt fólk fær tækifæri til að blómstra á eigin forsendum.
Hjaltastaðir vinna að uppbyggingu úrræðis fyrir ungt fólk á aldrinum 18–35 ára á einhverfurófi og með fjölþættan geðrænan vanda. Áhersla er lögð á dagþjónustu og tímabundna búsetu þar sem samfélag, stuðningur, þátttaka og náttúrutengsl eru í forgrunni.
Málþingið undirstrikaði hversu brýnt er að bæta þjónustu við einhverfa fullorðna og tryggja að einstaklingar falli ekki á milli kerfa. Í lok þess samþykktu fundargestir sameiginlega áskorun til Alþingis og stjórnvalda um að fylgja eftir fyrirliggjandi tillögum um úrbætur.
Við erum þakklát fyrir tækifærið til að kynna Hjaltastaði, miðla þeirri reynslu sem liggur að baki verkefninu og taka þátt í þessari mikilvægu umræðu.
Hægt er að horfa á málþingið í heild sinni hér:
Akureyri.net fjallaði ítarlega um málþingið í fréttinni „Þekkingin er til – nú þurfa verkin að tala!“ https://www.akureyri.net/.../thekkingin-er-til-nu-thurfa...
Saman sköpum við rými til að vaxa.

Comments